Ekki fleiri myndir hér. Hægt er að skoða myndaalbúmið okkar nýja þar sem myndir verða settar inn í stað þess að hafa þær hér...
http://public.fotki.com/ulfarsbraut/
Það er ennþá allt að gerast í húsinu, við erum bara þar öll kvöld og höfum verið að undirbúa fyrir málarann. Allir milliveggir komnir :) Stefnan er ennþá tekin að flytja inn í júlí!
Sýnir færslur með efnisorðinu Búkolla byggir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Búkolla byggir. Sýna allar færslur
03 júní 2008
07 maí 2008
Allt í góðu lagi
Bara smá öppdeit, það gengur allt mjög vel í húsinu, alveg hreint rífandi gangur í raun og veru... við erum þarna hjónakornin á hvurju kvöldi og allar helgar, húsið orðið fokhelt og verið að vinna í að koma gólflögnum á sinn stað, þá verður flotað, síðan milliveggjum hent upp, klárað að pípa, síðan sparslað og málað, síðan eldhúsinnréttingin sett upp og þá getur litla fjölskyldan flutt inn.
Set fljótlega inn myndir :)
Set fljótlega inn myndir :)
21 mars 2008
Ballið heldur áfram....
Það er búið að vera að vinna í húsinu sleitulaust, allar helgar og flest kvöld hafa farið í húsið uppá síðkastið enda allt að gerast... og veðrið loksins til þess að vinna.
Þarna erum við að setja tjöruprimer við gluggana, síðan kemur teip alveg við gluggana og útá vegg, þetta á að einangra allt voðalega vel.jæja það er nú svo sem ýmislegt sem gerist í húsinu án þess að ég sé að blogga um það...
en nú er staðan þannig að norðurhliðin er búin að taka á sig mynd, allir gluggar komnir á sinn stað og bara rétt eftir að þétta þá.
Suðurhliðin er líka öll að koma til og flestir gluggar komnir, aðeins eftir að glerja eitthvað. Það er sem sagt verið að loka húsinu.
Jæja má ekki vera að þessu bloggi - farin uppí hús... (æj æj nei það er föstudagurinn langi...)
Jæja má ekki vera að þessu bloggi - farin uppí hús... (æj æj nei það er föstudagurinn langi...)
Gleðilega páska :)
04 mars 2008
Ballið búið?!?
Hvað meiniði???
við héldum að ballið væri bara rétt að byrja!
af hvurju er okkur ekki sagt frá þessu?
---oOo---
---oOo---
Þarna trónir húsið okkar, eins og það sé kviknað í hjá nágrönnum okkar, við erum í myrkrinu :)
---oOo---
...tekið úr Fréttablaðinu á laugardaginn 01.mars 2008
ps. smellið á myndina, þá stækkar hún
17 febrúar 2008
Það er alltaf nóg að gera...
hér er meistarinn/bóndinn/prinsinn (allt sami maðurinn MINN) að bera sig mjög svo faglega að verkinu og sýnir hér undirsuðu og yfirsuðu...
Mér finnst hann flottur!
Úúú jee
Allir eru nýttir í hin ýmsu verk, aldnir sem ungir... hér mokar tengdapabbi vatninu afar faglega, því út skal það... eða var það inn?
Úúú jee
13 febrúar 2008
10 febrúar 2008
We are back... góðir hálsar.
Töff mynd tekin snemma einn morgun eftir óvænt rok,,, eða var það ekki svo óvænt?
Og hér er bara vaðið uppá þak og verið voðalega stór kall
"Im on the top of the world looking down on creation"
Það er sem sagt verið að bíða eftir að það verði nægileg þýða og kannski ekki rok og snjór og rigning og allt það til þess að hægt sé að steypa þakið! djísús þetta veður...
Sætar stelpur!
Hvar er Karen?
En ég meina það er samt allt að gerast, um leið og það lygnir þá eru allir menn klárir í bátana og
Og hér er bara vaðið uppá þak og verið voðalega stór kall"Im on the top of the world looking down on creation"
Það er sem sagt verið að bíða eftir að það verði nægileg þýða og kannski ekki rok og snjór og rigning og allt það til þess að hægt sé að steypa þakið! djísús þetta veður...
Sætar stelpur!
Hvar er Karen?
En ég meina það er samt allt að gerast, um leið og það lygnir þá eru allir menn klárir í bátana og hér er verið að grafa fyrir heimlögnunum, kalt og heitt vatn komið á í kofanum.
Og þarna var verið að setja upp súlur fyrir húsmóðurina, nei fyrir stóru gluggana, ég fæ víst ekki að nota þessar súlur! nema fyrir glugga ok.
Og þarna var verið að setja upp súlur fyrir húsmóðurina, nei fyrir stóru gluggana, ég fæ víst ekki að nota þessar súlur! nema fyrir glugga ok.Annars sást til okkur fjórmenninganna niður í kjallaranum í kringum eina ljósaperu og dáðumst af verki rússana (ergó rússneskar perur komnar hér og þar) en húsið er ekki fokhelt?
Afsakið kæru lesEndur að við höfum ekki verið nægilega dugleg við að henda inn myndum hér á síðuna okkar, en þessa leti má skrifa alfarið á húsmóðurina og má hún skammast sín...
Heyrði eitthvað útundan mér að fólk væri orðið leitt á áramóta myndinni, enda hefur hún verið aldeilis lengi, það er komin ein framtönn og allt! lofa að láta heyra í okkur fyrr næst.
Blessjú :)
29 desember 2007
20 desember 2007
Gluggagæjar út-um-allt
Það var sko tekið á því í vikunni og fjörutíu já skrifa og segi fjörutíu feta gámur stútfullur af gluggum og körmum og hurðum tekinn í nefið. Það var verið að losa gáminn og setja einhverja glugga í bílskúra og þannig hafa betra aðgengi fyrir því sem geymt er í gámnum örlitla stund í viðbót. Í fellinu búa 12 jólahreystimenni og komu þeir allir eins og kallaðir, enda jólin á næsta leiti og allir þurfa þeir hvorteðer að fara að arka í bæinn, þó með stuttu stoppi í Úlfarsbrautinni...
Hvað er það sem maður segir, myndir segja meira en þúsund orð, læt ég því hér staðar numið og leyfi ykkur að njóta myndanna í myrkrinu.
ps vil taka það fram að þetta eru svona cirka 150 til 250 kg gluggar... og þeir tóku þessi kíló eins og fjaðrir væru :)
Hvað er það sem maður segir, myndir segja meira en þúsund orð, læt ég því hér staðar numið og leyfi ykkur að njóta myndanna í myrkrinu.
ps vil taka það fram að þetta eru svona cirka 150 til 250 kg gluggar... og þeir tóku þessi kíló eins og fjaðrir væru :)
Allir með gott grip!
Það má með sanni segja að allir gluggagæjarnir með tölu verða í reisigillinu...
24 nóvember 2007
05 nóvember 2007
01 nóvember 2007
28 október 2007
21 október 2007
Gert klárt fyrir næstu hæð, þe þriðju og síðustu.
17 október 2007
16 október 2007
Drenið lagt ... loksins.


Ok ég segi ekki að þetta hús gangi ílla, heldur frekar hægt, það er haldið vel áfram og má segja að strákarnir/prinsarnir/hetjurnar séu alveg hreint brilliant duglegir ... en aftur að þessu með að ganga hægt, sko við eigum að tæma okkar íbúð eftir mánuð! Halló á einhver þarna úti bílskúr??? svona mubluhæfann :) oh jæja það mátti reyna ... en takk samt :)
Strákarnir voru að vinna í dag, þrusu duglegir ... ó var ég búin að segja þetta áður? þegar ég kom við til að skoða þá vinna, ferlega hot að horfa á flotta menn vinna, þeir eru reyndar soldið dúðaðir en hey maður getur alltaf notað ímyndunaraflið ...grrrr ...já sorry gleymdi mér aðeins hvar var ég? já þeir voru að tala um að Hús og Híbýli ættu nú að koma við og sjá þessa flottu drenlögn og jarðvegsvinnu, ótrúlegt hvað það er hægt að vera stoltur af jarðvegsvinnu :) og hvar er Vala Matt? skil'etta bar'ekki.
Svo er það bara að koma sér uppúr þessari holu og drífa þriðju hæðina upp upp upp mín sál. og svo þakið og svo gluggana og svo rafmagnið og svo hitann og svo klósettið og svo innréttingar og svo okkur...
og svo eru menn að furða sig á því að kona sé andvaka
10 október 2007
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)































og svo fer þetta ofan á ...
