
01 janúar 2008
29 desember 2007
20 desember 2007
Gluggagæjar út-um-allt
Það var sko tekið á því í vikunni og fjörutíu já skrifa og segi fjörutíu feta gámur stútfullur af gluggum og körmum og hurðum tekinn í nefið. Það var verið að losa gáminn og setja einhverja glugga í bílskúra og þannig hafa betra aðgengi fyrir því sem geymt er í gámnum örlitla stund í viðbót. Í fellinu búa 12 jólahreystimenni og komu þeir allir eins og kallaðir, enda jólin á næsta leiti og allir þurfa þeir hvorteðer að fara að arka í bæinn, þó með stuttu stoppi í Úlfarsbrautinni...
Hvað er það sem maður segir, myndir segja meira en þúsund orð, læt ég því hér staðar numið og leyfi ykkur að njóta myndanna í myrkrinu.
ps vil taka það fram að þetta eru svona cirka 150 til 250 kg gluggar... og þeir tóku þessi kíló eins og fjaðrir væru :)
Hvað er það sem maður segir, myndir segja meira en þúsund orð, læt ég því hér staðar numið og leyfi ykkur að njóta myndanna í myrkrinu.
ps vil taka það fram að þetta eru svona cirka 150 til 250 kg gluggar... og þeir tóku þessi kíló eins og fjaðrir væru :)
Allir með gott grip!
Það má með sanni segja að allir gluggagæjarnir með tölu verða í reisigillinu...
24 nóvember 2007
05 nóvember 2007
01 nóvember 2007
28 október 2007
21 október 2007
Gert klárt fyrir næstu hæð, þe þriðju og síðustu.
17 október 2007
16 október 2007
Drenið lagt ... loksins.


Ok ég segi ekki að þetta hús gangi ílla, heldur frekar hægt, það er haldið vel áfram og má segja að strákarnir/prinsarnir/hetjurnar séu alveg hreint brilliant duglegir ... en aftur að þessu með að ganga hægt, sko við eigum að tæma okkar íbúð eftir mánuð! Halló á einhver þarna úti bílskúr??? svona mubluhæfann :) oh jæja það mátti reyna ... en takk samt :)
Strákarnir voru að vinna í dag, þrusu duglegir ... ó var ég búin að segja þetta áður? þegar ég kom við til að skoða þá vinna, ferlega hot að horfa á flotta menn vinna, þeir eru reyndar soldið dúðaðir en hey maður getur alltaf notað ímyndunaraflið ...grrrr ...já sorry gleymdi mér aðeins hvar var ég? já þeir voru að tala um að Hús og Híbýli ættu nú að koma við og sjá þessa flottu drenlögn og jarðvegsvinnu, ótrúlegt hvað það er hægt að vera stoltur af jarðvegsvinnu :) og hvar er Vala Matt? skil'etta bar'ekki.
Svo er það bara að koma sér uppúr þessari holu og drífa þriðju hæðina upp upp upp mín sál. og svo þakið og svo gluggana og svo rafmagnið og svo hitann og svo klósettið og svo innréttingar og svo okkur...
og svo eru menn að furða sig á því að kona sé andvaka
10 október 2007
06 október 2007
Járnabindingar - indingar - ngar - ar - rrr
það er ekki ennþá búið að moka að húsinu, enda eftir að steypa gólfið og leggja drenið í kringum húsið ...
Bóndinn spurði pólverjana okkar í gær
"when are you gonna ... steypa?" (já þeir skilja orðið steypa)
það lá ekki á svari ... "tomorrow" ...
25 september 2007
Og hvað á svo þessi færsla að heita? anyone - Beauler ...
Uppsláttur
Hér hefur verið slegið upp fyrir svölunum okkar, næsta skref þar er að járnabinda og svo steypa þegar rafvirkinn hefur lokið sér af á hæðinni og píparinn gert það sem hann á að gera. Nú svo þegar það allt er komið og gólfið hefur verið steypt þá er hægt að moka að húsinu og þá fer nú að vera gaman að lifa :)
Bara unnið og unnið.Það sem við höfum verið að gera uppá síðkastið er mest og mikið, það er búið að vera moka (jiii eruð þið ekki hissa að við séum að moka?) já það er ennþá hægt að moka og við gerum það óspart, þe spara að fá aðra til að gera það sem við getum alveg gert sjálf... það er nefnilega verið að hugsa fyrir dreninu í kringum húsið og það þurfti að setja mjúkann sand undir rörin. Það hafa verið mörg góð kódak-mómentin, td ég og Eyrún að baksa við að koma fullum hjólbörum niður grýttann jarðveginn, síðan mætti Kristjana sys á svæðið og tók góða syrpu við að moka, alveg eins og herforingi, takk fyrir hjálpina kæra sys :) þú ert búin að vinna þér inn boð í reisugillið!
Við höfum kannski ekki verið svo dugleg við að taka myndir uppá síðkastið, lofum bótum á því.
Meira síðar.
18 september 2007
15 september 2007
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)

























og svo fer þetta ofan á ...







