28 október 2007

Frá þriðju hæðinni séð

Hér er staðið á þriðju hæðinni og horft niður í stofuna.

Þessi venjulega, en glöggar lesEndur sjá að það er búið að taka viðarverkið...

Hér er svo horft niður í hyldýpið ... scary mary

ps Baunin spurði hversu stórt húsið yrði, jú þetta eru skráðir 226 fm.

21 október 2007

Gert klárt fyrir næstu hæð, þe þriðju og síðustu.

Síðan þessi mynd var tekin þá er búið að setja fíligran plöturnar á undirstöðurnar og enn verið að undirbúa... meira síðar.

17 október 2007

16 október 2007

Og svo sturta


Drenið lagt ... loksins.



Ok ég segi ekki að þetta hús gangi ílla, heldur frekar hægt, það er haldið vel áfram og má segja að strákarnir/prinsarnir/hetjurnar séu alveg hreint brilliant duglegir ... en aftur að þessu með að ganga hægt, sko við eigum að tæma okkar íbúð eftir mánuð! Halló á einhver þarna úti bílskúr??? svona mubluhæfann :) oh jæja það mátti reyna ... en takk samt :)
Strákarnir voru að vinna í dag, þrusu duglegir ... ó var ég búin að segja þetta áður? þegar ég kom við til að skoða þá vinna, ferlega hot að horfa á flotta menn vinna, þeir eru reyndar soldið dúðaðir en hey maður getur alltaf notað ímyndunaraflið ...grrrr ...já sorry gleymdi mér aðeins hvar var ég? já þeir voru að tala um að Hús og Híbýli ættu nú að koma við og sjá þessa flottu drenlögn og jarðvegsvinnu, ótrúlegt hvað það er hægt að vera stoltur af jarðvegsvinnu :) og hvar er Vala Matt? skil'etta bar'ekki.
Svo er það bara að koma sér uppúr þessari holu og drífa þriðju hæðina upp upp upp mín sál. og svo þakið og svo gluggana og svo rafmagnið og svo hitann og svo klósettið og svo innréttingar og svo okkur...
og svo eru menn að furða sig á því að kona sé andvaka

10 október 2007

Maybe tomorrow var í gær :) og það var steypt og steypt

og svo fer þetta ofan á ...
og þá má næsta hæð koma :)

06 október 2007

Járnabindingar - indingar - ngar - ar - rrr

Bridge over troubled water ...
það er ekki ennþá búið að moka að húsinu, enda eftir að steypa gólfið og leggja drenið í kringum húsið ...
Bóndinn spurði pólverjana okkar í gær
"when are you gonna ... steypa?" (já þeir skilja orðið steypa)
það lá ekki á svari ... "tomorrow" ...
Þeim er alvara með þetta að járnabinda.
Ég meina það, hafið þið séð annað eins? Þetta ætti að halda, myndi ég halda!

Og svo að lokum þessi sem er vatnið og rafmagnið inní bílskúrnum...
kræst hvert fer hvað og hvernig?
Lifið heil :)