Hér er maður dreginn á afturendanum framúr fyrir allar aldir í sumarfríinu sínu til að gera hvað ? jú mikið rétt moka með elskunni sinni. Hann nennti ekki að vera einn í sandkassaleiknum í dag og vildi félagsskap... að sjálfsögðu valdi hann mig, en ekki hvað !?!
Þannig að við vorum komin rétt fyrir klukkan níu í morgun og svo byrjaði stritið, og ég get sko lofað ykkur að þetta var PÚL, já bara Helv Púl (ég var ekki lengi að ná upp lingóinu... það voru berir smiðir um allar jarðir og þeir kunnu sko að tjá sig (ég ætla ekki að skrifa orðið sem ég lærði í dag, það gætu börn verið að lesa þetta blogg, en ég get lofað að prinsinum mínum blöskraði smá orðaforðinn minn eftir daginn hnegg hnegg)
Verkefni dagsins var að setja sand í sökklana, dreifa vel úr og þjappa... sandurinn átti að ná fjóra til fimm cm frá brún, síðan verður sett einangrun og svo steypa, þetta átti að vera slétt og þegar ég skrifa slétt þá er ég að tala um slétt,,, ekkert semi slétt, eða svona næstum slétt, nei slétt !

Heyrið nóg um orð, hér koma myndir:

Það var mokað

Og það var þjappað

Og meira mokað, eða eiginlega sléttað með svona flatri sköfu...
Þetta er svo afrakstur dagsins, fjögur hólf stútfull af þjöppuðum sandi.
Vinnudagurinn var sem sagt frá klukkan níu til fimm (eða reyndar hálf fimm) og þá var farið í pottana til að hita upp auma vöðva, því eins og hann Múri okkar (á eftir að segja ykkur frá honum) sagði svo skemmtilega þegar hann kíkti á okkur um klukkan fjögur "þið eigið eftir að finna fyrir þessum degi langt inn í næstu viku"
5 ummæli:
Hvenær ætlarðu svo að reisa höllina?
og kviddnin er heilsan?
Jæja, vúman! Hvernig gengur svo? Ert'að moka mold eða á sólarströnd með tásurnar upp í lotttt? Ég skýt á hið fyrrnefnda. Sakna þín.
Anna mín, höllin verður reist á næstu dögum...spennó.
Trúðu mér kæra Baun ég fann fyrir þessu leeengi.
Elskulega Rannslan mín, velkomin :) ding ding ding, rétt svar er, moka og setja tásslur í lott inná milli :)
úps deletaði mínu eigin kommenti :/
Skrifa ummæli