![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEgKDW0UxUwHb1j51cUlDHJ-KuPshyzNP7kr5fR64gl9deYXvYq2eb-sgozLRNoXLB8NqzOwTbJehjg6Fkw1yDm_D-Syy6MOSzKSd18TieFRqBDLS0CP1Bm70svPF4bQC8-rh8RKkg/s200/bootcamp+sj%C3%B3v%C3%A1.bmp)
Vá og ég meina Vá !! komst að því að þriðjudagurinn var bara kynningarFUNDUR :o) Þetta var ótrúlegt púl í dag... byrjuðum á stigahlaupi, hlaupið 4 ferðir upp og niður stigana, þetta eru 6 hæðir (held að einhverjir hafi hlaupið fleiri ferðir, en ég fór 4 og fannst það alveg nóg) knúsuðum malbikið í bílakjallaranum í armbeygjum og allskynns æfingum, vorum þakklát fyrir að fá að hvíla ennið á marmarflísagólfinu í einhverjum frekar lúmskum æfingum og enduðum síðan á 600 magaæfingum (ekki prentvilla sexhundruð á það að vera) og þá máttum við fara í sturtu.
Það sést orðið langar leiðir hverjir eru í hópnum, það erum við sem erum með frekar skrítið göngulag og stynjum
þegar við stöndum upp eða setjumst niður. Og þetta borgum við fyrir :o)
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEhVmhGka9QEPHRKaAtpIIZG0ATXgLeR6XwWq4AFnBmV3fzdH47j-w_iaeY1vWM85EKDojjkx9yR70VkC7ZAFXRGeCZUzvGBF68o73_043JF8DEd8S_XYoTUnLoMbbgQw6oxXyoUgQ/s200/tossed+salat.bmp)
Þetta er rosalega gaman og þvílík hópefling, góð stemmning í hópnum núþegar :o) Í dag fengum við svo matardagbók og upplýsingar um hvað skuli borða og hvað er minna vinsælt... ég var með spínatlasagna í matinn í kvöld og fólkinu fannst það bara gott :o) allir græða...
3 ummæli:
Vá!!
Heyr, heyr! þetta eru yndislegar harðsperrur ;) ooh svo gaman !!
Þú hlýtur að vera haldin sjálseyðingarhvöt að fara í svona ! Púfff !
Good luck samt ;)
Skrifa ummæli